02júní
Jæja góðir hálsar.
Nú hef ég, Stefán Ari Stefánsson, lokið grunnskóla!
Eftir þessi 10 ár í Kópavogsskóla hef ég gengið í gegnum margt, bæði gott og slæmt. Ég er búinn að kynnast fullt af fólki og eignast marga æðislega vini. Ég ætla að vona að þeir hverfi ekki bara út í buskann.
Allavega, núna síðustu daga hef ég verið á kafi og prófum og svona. En á þriðjudaginn flutti ég í nýtt herbergi :) Semsagt gamla herbergið hennar systur minnar, sem er nú flutt út. Ég er mjög ágnægður með þetta herbergi því að það er miklu flottara en gamla herbergið mitt á allan hátt. Og ekki þessi ógeðslegi litur á veggjunum hér eins og þar. Nóg um það. Það sem ég ætla að gera á næstunni er að sækja um vinnu ( helst í gær ), hitta vini mína : ), og fara til spánar :D
Núna egið þið að koma með uppástungur á stöðum sem ég ætti að sækja um vinnu. :D
Takk fyrir mig,
- Stebbi hressi kveður !
15maí
Sælir og sælar
Fyrirgefiði að ég er ekki búinn að blogga í alveg tvær vikur
búinn að vera upptekinn vegna samræmdu og svona. Það er samt búið núna þannig að þið getið alveg andað léttar
Svo var það vorferðin. Hún var geggjuð! Fórum í river rafting í Jökulsá Vestari. Skítkalt á höndunum en það aftraði ekki skemmtuninni

Eftir rafting fórum við að skoða einhvern sveitabæ. Man ekki í augnablikinu hvað hann heitir en nafnið var kennt við fyrsta hestinn sem kom til Íslands. Fengum að drekka NÝmjólk, alveg splunkunýja, það var alveg nokkuð gott. Þó að maður var ekkert hrikalega spenntur fyrir því fyrst. Og svo fengum við líka að halda á lömbum, ótrúlega krúttleg.
Svar náttúrulega farið í sund og chillað um kvöldið

.
Í dag er ég búinn að vera með Dóra frænda í allan dag. Hann gisti hjá mér í gærnótt og við vöknuðum um hádegisbil og fengum okkur að borða og fórum síðan út í smáralind. Þar ákváðum við að fara í bíó um kvöldið. Ég fór svo heim að borða kl hálf sjö og kom svo aftur um áttaleitið og þar var Geir kominn. Og við fórum á Cry Wolf sem er alveg mjög spennandi mynd. Sniðugt plott. Ekki beint besta mynd sem maður hefur séð en samt gaman að horfa á hana. Eftir bíóið vorum löbbuðum við aðeins útá selekt og smáralind. og ég fór svo samferða Geir í strætó heim klukkan 11.
Bæjó
- Stebbi
Muna svo að kommenta og skrifa í gestabókina!
01maí
Góða kvöldið gott fólk!
Þá kom að því, ég hætti með Blog.central draslið og tók eitt skref áfram og skráði mig hingað.
Þetta þykir mér mikið flottara en Blog.central.is allavega.
En já. Það þarf ekki að segja neinum hvað það er stutt í samræmdu, enda allir að læra eins og brjálæðingar.
Í dag vaknaði ég alveg ótrúlega seint. Allavega miðað við hvenær ég fór að sofa. Ég virka neflilega ekki eins og sumir. Ég sef þar til einhver vekur mig. Annars vakna ég bara ekkert. Eða jú, en ég get allavega sofið helvíti lengi. Anyway, ég fór á fætur, í sturtu og fékk mér að borða. Ekkert merkilegt við það, svo kom kvöldmaturinn fljótlega og strax eftir það þá hringdi hann Halldór frændi í mig og bað mig að koma. Ég gerði það og var kominn stuttu síðar.
Nú erum við búnir að hanga hérna í allt kvöld, fórum á selekt og keyptum okkur eitt stk. nammi. Vildum ekki vera að kaupa mörg nömm því það var nú laugardagur í gær og þá fékk maður nóg.
Jæja, þá vitiði það.
Sjáumst!
- Stebbi